Hide

Problem B
Bíókort

Languages en is
/problems/biokort/file/statement/is/img-0001.png
Síðasta bíókort Arnars.

Fyrir mörgum árum síðan var Bíótríóið stofnað. Upprunalegu meðlimirnir voru Arnar, Hannes og Sara. Markmið hópsins var einfalt: að fara í bíó oft og ódýrt. Hópnum tókst að fara hátt í 100 sinnum, eða jafnvel oftar, í bíó hvert ár. Nokkrum árum eftir stofnun slóst Halldór í hópinn og nafni hópsins var breytt í Kvikmyndakvartettið.

En hvernig tókst hópnum að fara svona oft í bíó án þess að glata öllum fjármunum sínum? Svarið er bíókortið! Smárabíó bauð eitt sinn upp á árskort í bíó sem var borgað fyrir í eitt skipti og mátti svo nota á hverja kvikmynd nákvæmlega einu sinni. Bíókort var ekki bundið við einstakling, heldur mátti deila einu bíókorti milli margra manneskja. Með því að kaupa sér bíókort þegar þau voru á afslætti, tókst hópnum að borga einungis $240$ íslenskar krónur fyrir hvern bíómiða að meðaltali eitt árið. Því miður er þetta ekki lengur í boði.

Kvikmyndakvartettið var ekki mikið fyrir að sleppa kvikmyndum en stundum tóku þau gesti með sér. Hvert ár skipulögðu þau og rannsökuðu hvaða gesti þau gætu tekið með sér. Þau vissu nákvæmlega hversu vinsæl hver kvikmynd yrði, eða í öðrum orðum, hversu margir í hópnum vildu sjá hverja kvikmynd.

Hvernig tókst þeim að lágmarka kostnaðinn fyrir árið?

Inntak

Fyrsta línan inniheldur þrjár heiltölur $n$, fjölda kvikmynda sem eru í sýningu þetta ár, $m$, verð á stökum bíómiða og $k$, verð á bíókorti fyrir árið, bæði í íslenskum krónum. Að lokum fylgja $n$ línur sem lýsa einni kvikmynd hver. Hverri kvikmynd er lýst með nafni og vinsæld kvikmyndarinnar, aðskilin með bili.

Sérhvert nafn á kvikmynd er einstakt og er minnst $1$ og mest $20$ enskir hástafir, lágstafir eða tölustafir. Það mun ávallt gilda að $0 \leq m \leq 100\, 000$ og $0 \leq k \leq 10\, 000\, 000$. Sérhver vinsæld er minnst $0$ og mest $10^6$.

Úttak

Skrifaðu út fjölda bíókorta sem skal kaupa og heildarkostnað hópsins yfir allt árið í íslenskum krónum þannig að heildarkostnaður sé lágmarkaður. Ef til eru mörg rétt svör máttu skrifa út eitthvert þeirra. Athugaðu að það eru mest $10^6$ bíókort búin til hvert ár og því ekki hægt að kaupa fleiri.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

10

$1 \leq n \leq 1\, 000$, $m = 0$, $k = 0$.

2

10

$1 \leq n \leq 1\, 000$, $m = 0$.

3

10

$1 \leq n \leq 1\, 000$, $k = 0$.

4

10

$1 \leq n \leq 1\, 000$.

5

10

$1 \leq n \leq 200\, 000$, allar kvikmyndir eru jafn vinsælar.

6

10

$1 \leq n \leq 200\, 000$, sérhver vinsæld er minnst $0$ og mest $999$.

7

20

$1 \leq n \leq 200\, 000$, mest $1\, 000$ mismunandi vinsældir.

8

20

$1 \leq n \leq 200\, 000$.

Sample Input 1 Sample Output 1
12 2250 24000
Oppenheimer 5
GranTurismo 4
BlueBeetle 4
Expend4bles 4
SawX 2
TheMarvels 4
BalladOfSongbirds 4
GodzillaMinusOne 6
AquamanLostKingdom 2
Argylle 3
TheBeekeeper 4
DunePart2 4
2 97500
Sample Input 2 Sample Output 2
5 1 2
Omurleg 0
Leleg 1
Ok 2
God 3
Frabaer 4
2 7