Hide

Problem D
Enn Eitt EEEE Erfiði

Languages en is
/problems/eeee/file/statement/is/img-0001.png
Mynd fengin af wikipedia.com

Arnar er gersamlega kominn með upp í kok af öllum skammstöfunum og styttingum í vinnunni. Allt frá DDI, i13n, o11y í LASIK. Það er ekki hægt að lesa hálfa blaðsíðu án þess að þurfa stoppa til að fletta upp allskyns skammstöfunum. Að lokum ákveður hann að fara gera eitthvað í þessu og ætlar að taka saman flækjustigið á gögnunum sínum til að sýna hvað vandinn er orðinn mikill. Hann er hins vegar auðvitað upptekinn við að vinna í vinnunni, og fær því þig til að reikna út flækjustig allra skammstafana í gögnunum sínum. Flækjustig skammstöfunar er gefið með fjölda skammstafana sem þarf að skilgreina til þess að skilja hvað það merkir. Til dæmis er flækjustigið á LASER (Light Amplified by Stimulated Emission of Radiation) aðeins $1$ því það vísar ekki í neinar fleiri skammstafanir. Hins vegar er flækjustigið á DDI $5$ því það vísar í DNS, DHCP og IPAM, þar af vísar IPAM sér í lagi í IP. Athugið að skammstafanir getað vísað í sjálfa sig og í hvora aðra með rásuðum hætti.

Inntak

Fyrsta línan inniheldur eina heiltölu $1 \leq n \leq 30 \, 000$, fjölda skammstafana sem skilgreind eru í inntaki. Næstu $n$ línur innihalda hver eina skilgreiningu á skammstöfun. Línan byrjar á skammstöfuninni sem á að skilgreina og svo kemur tala $0 \leq k \leq n$, fjöldi orða sem hún vísar í. Loks koma svo $k$ orð fyrir. Orðin innihalda annað hvort bara litla eða bara stóra stafi. Orðin með stórum stöfum eru aðrar skammstafanir, en hin ekki. Allir strengir í inntaki eru af lengd mest $20$ og innihalda aðeins enska stafi. Samtals lengd allra strengja í inntaki er mest $2 \, 000 \, 000$. Allar skammstafanir sem vísað er í inntaki eru skilgreindar einhvers staðar í inntaki.

Úttak

Fyrir hverja skammstöfun sem kemur fyrir í inntaki skal prenta flækjustig hennar á sinni eigin línu, í sömu röð og skammstafanirnar eru skilgreindar í inntaki.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

10

Skammstafanir vísa ekki í aðrar skammstafanir, $1 \leq n \leq 1 \, 000$.

2

15

Allar skammstafanir eru skilgreindar áður en vísað er í þær og engar tvær skammstafanir vísa í sömu skammstöfunina, $1 \leq n \leq 1 \, 000$.

3

10

Allar skammstafanir eru skilgreindar áður en vísað er í þær og engar tvær skammstafanir vísa í sömu skammstöfunina.

4

40

$1 \leq n \leq 1\, 000$.

5

25

Engar frekari takmarkanir.

Útskýring á sýnidæmum

Í fyrra sýnidæminu vísa LASER, IP, DNS og DHCP ekki í neinar aðrar skammstafanir, svo aðeins þarf að skilgreina skammstafanirnar sjálfar. Því er flækjustig þeirra $1$. LASIK vísar hins vegar í LASER og er því með flækjustig $2$ frekar en $1$, og eins er $IPAM$ með flækjustig $2$. Til að skilja DDI hins vegar þarf að skilgreina DNS, DHCP og IPAM. Hins vegar er flækjustigið $5$ en ekki $4$ því það þarf þar að auki að skilgreina IP til að skilja IPAM.

Í seinna sýnidæmi eru YARA, DB og UNIX með flækjustig $1$. Núna eru hins vegar sumar skammstafanir sem vísa í sjálfa sig. Þetta hefur hins vegar ekki áhrif á flækjustig. Til að skilja PHP þarf bara að skilgreina PHP, þó svo að skilgreiningin vísi aftur í PHP, svo flækjustigið er $1$. Svipað fyrir XAMPP skiptir bara máli að við þurfum að skilgreina DB og PHP til viðbótar, sem gefur flækjustig $3$. Eins er GNU með flækjustig $2$. Næst sjáum við að HIRD og HURD vísa í hvort annað, svo til að skilja annað hvort þurfum við að skilja bæði. Saman vísa þau bara í UNIX, svo til að skilja annað þurfum við að skilja skammstafanirnar HIRD, HURD og UNIX. Því er flækjustig beggja $3$. Loks sjáum við að GNULINUX vísar í UNIX tvisvar, en það breytir ekki hvað þarf að skilgreina margar skammstafanir samtals. Því þarf bara að skilgreina GNULINUX, UNIX og GNU, sem gefur flækjustig $3$.

Sample Input 1 Sample Output 1
7
LASER 7 light amplified by stimulated emission of radiation
LASIK 5 LASER assisted in situ keratomileusis
IP 2 internet protocol
IPAM 3 IP address management
DNS 3 domain name system
DHCP 4 dynamic host configuration protocol
DDI 3 DNS DHCP IPAM
1
2
1
2
1
1
5
Sample Input 2 Sample Output 2
9
PHP 3 PHP hypertext preprocessor
DB 2 data base
XAMPP 6 XAMPP apache maria DB PHP perl
HURD 5 HIRD of UNIX replacing daemons
UNIX 5 uniplexed information and computing service
HIRD 5 HURD of interfaces representing depth
GNU 3 GNU not UNIX
GNULINUX 5 GNU not UNIX linus UNIX
YARA 4 yet another recursive acronym
1
1
3
3
1
3
2
3
1