Hide

Problem R
Höfundaleit

Languages en is
/problems/hofundaleit/file/statement/is/img-0001.jpg
Mynd fengin af commons.wikimedia.org

Hallgerður Stuttbrók er stödd á bókasafninu á Reyðarfirði. Hún er að leita sér að einhverju skemmtilegu til að lesa, en á erfitt með að finna bókina. Þetta er vegna þess að hún man ekki hver höfundur bókarinnar er, en á bókasafninu er bókum raðað eftir höfundi. Getur þú hjálpað henni að finna númer bókanna sem hún vill lesa í röðinni?

Inntak

Fyrsta línan inniheldur tvær heiltölur $n$, fjöldi bóka á bókasafninu, og $q$, fjöldi bóka sem Hallgerði langar að lesa. Næstu $n$ línur munu hver innihalda lýsingu á einni bók, fyrst titil bókarinnar og svo höfund, aðskilin með kommu. Loks koma $q$ línur sem hver innihalda einn bókatitil, hver þeirra lýsir bók sem Hallgerður vill lesa. Titlar og höfundanöfn munu bara innihalda enska há- og lágstafi ásamt undirstrikum. Engar tvær ólíkar bækur hafa sama titil. Sérhver titill og sérhvert höfundarnafn verður mest $25$ stafir að lengd. Samtals lengd allra strengja í inntaki verður mest $10^6$ stafir samtals.

Úttak

Fyrir hverja bók sem Hallgerður vill lesa, prentið númer hvað hún er í röðinni ef öllum bókum er raðað eftir höfundanafni. Hér lítum við svo á að fyrsta bókin sé númer $1$, næsta númer $2$ og svo framvegis. Ef bók er ekki til skal prenta $-1$ í staðinn. Ef höfundur er með fleiri en eina bók er bókunum innbyrðis raðað eftir titli. Röðin er venjulega stafrófsröð strengja út frá ASCII-gildi. Athugið að þetta er sama röð og innbyggða röðunarfall flestra forritunarmála skilar. Til dæmis sorted í Python eða std::sort í C++.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

10

$0 \leq n, q \leq 100$, engin af bókunum sem beðið er um eru til á safninu.

2

10

$0 \leq n, q \leq 100$, enginn höfundur er með fleiri en eina bók, bókasafnsbókum er raðað eftir höfundi, allar bækur til á safninu.

3

20

$0 \leq n, q \leq 100$, enginn höfundur er með fleiri en eina bók, allar bækur til á safninu.

4

20

$0 \leq n, q \leq 100$, enginn höfundur er með fleiri en eina bók.

5

20

$0 \leq n, q \leq 100$.

6

20

$0 \leq n, q \leq 100\, 000$.

Sample Input 1 Sample Output 1
3 1
Krimmi_Hundrad, Arnaldur_Indridason
Lenging_broka, Hallgerdur
Dune, Herbert_S_Wilf
Lenging_broka
2
Sample Input 2 Sample Output 2
5 3
Undirstodur, Isaac_Aasimov
Sjalfstaett_folk, Halldor_Laxness
Britt_Marie_heilsar, Fredrik_Backman
Eg_velmenni, Isaac_Aasimov
Madur_sem_heitir_Ove, Fredrik_Backman
Undirstodur
Madur_sem_heitir_Ove
Inngangur_ad_forritun
5
2
-1