Hide

Problem C
Borðspil

Languages en is
/problems/bordspil/file/statement/is/img-0001.jpg
Mynd fengin af flickr.com

Arnar og Unnar keyptu sér nýlega borðspil. Spilið virkar þannig að Arnar fær $n$ kubba og Unnar fær $m$ kubba. Það er hægt að leggja niður kubbana á þrjá mismunandi reiti. Arnar byrjar og dreifir kubbunum sínum á milli allra reita. Síðan dreifir Unnar öllum kubbunum sínum yfir reitina þrjá. Fyrir hvern reit sem Unnar hefur fleiri kubba en Arnar fær hann eitt stig en á móti fær Arnar stig fyrir hvern reit sem hann hefur fleiri eða jafn marga kubba og Unnar.

Nú spyrjum við þig, að reglum leiksins gefnum, ef bæði Arnar og Unnar spila fullkominn leik hver mun þá enda með fleiri stig og þar að leiðandi vinna leikinn.

Inntak

Eina línan í inntakinu inniheldur tvær heiltölur $n$ og $m$ ($0 \leq n, m \leq 10^9$).

Úttak

Ef Arnar fær fleiri stig ef þeir spila fullkomlega, þá skal skrifa út Arnar, annars skal skrifa út Unnar.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

25

$0 \leq n,m \leq 3$

2

25

$0 \leq n,m \leq 100$

3

25

$0 \leq n,m \leq 4000$

4

25

Engar frekari takmarkanir

Sample Input 1 Sample Output 1
3 3
Arnar
Sample Input 2 Sample Output 2
2 3
Unnar
Sample Input 3 Sample Output 3
1 2
Unnar