Problem F
Tok Tik
                                            
      Tok Tik er nýtt app sem unglingar eru gjörsamlega snaróðir
    í. Þar keppast þeir um að fá sem flest áhorf. Þú hefur lent í
    umræðu við vin þinn um hver væri í raun vinsælasti Tok Tikkari
    allra tíma. Þið skilgreinið vinsælasta Tok Tikkara allra tíma
    sem Tok Tikkarann sem hefur sem flest samanlögð áhorf á Tok
    Tikkin sín.
Þér er gefið lista yfir öll Tok Tik sem hafa verið sett á
    hitt heilaga internet. Hvert Tok Tik er lýst með hvaða Tok
    Tikkari gaf það út og hversu mörg áhorf Tok Tikkið
    hefur.
Finndu út hvaða Tok Tikkari er í raun vinsælastur. Það er gefið að það er til alltaf einn Tok Tikkari sem er vinsælastur.
Inntak
Fyrsta línan í inntakinu inniheldur eina heiltölu $n$ ($1 \leq n \leq 10^5$) sem gefur fjölda Tok Tikka sem eru til á internetinu.
Síðan koma $n$ línur, ein fyrir hvert Tok Tik, þar sem lína $i$ inniheldur streng $s_ i$ og tölu $a_ i$ $(1 \leq a_ i \leq 10^4)$, sem táknar að Tok Tikkari $s_ i$ gaf út þetta myndband og það hafa $a_ i$ Tok Tikkarar séð það. Hver strengur $s_ i$ inniheldur í mesta lagi $20$ enska lágstafi.
Úttak
Skrifið út eina línu með nafninu á þeim Tok Tikkara sem er vinsælastur.
Stigagjöf
| 
           Hópur  | 
        
           Stig  | 
        
           Takmarkanir  | 
      
| 
           1  | 
        
           50  | 
        
           $n \leq 100$  | 
      
| 
           2  | 
        
           50  | 
        
           Engar frekari takmarkanir  | 
      
| Sample Input 1 | Sample Output 1 | 
|---|---|
          5 benni 1500 bjarki 1200 unnar 1300 arnar 1600 bjarki 710  | 
        
          bjarki  | 
      
| Sample Input 2 | Sample Output 2 | 
|---|---|
          3 anna 5 anna 6 anna 7  | 
        
          anna  | 
      
| Sample Input 3 | Sample Output 3 | 
|---|---|
          5 kalli 1 kalli 1 gummi 5 kalli 3 gummi 1  | 
        
          gummi  | 
      
