Problem G
Miðjan
Languages
en
is
Sem leikskólakennari ertu vanur því að börn komist ekki í skólann vegna veikinda. Hluti af starfinu er að taka mætingu barnanna. Svo þú ert með lista yfir hvaða börn mættu hvaða dag. Í dag er miðvikudagur og þú ert að skoða mætinguna á mánudaginn og þriðjudaginn. Þú ert búinn að krota niður á blað hverjir mættu báða daganna en þig langar að vita hverjir mættu annan daginn en ekki hinn.
Nánar tiltekið langar þig, fyrir hvorn dag fyrir sig, að finna hvaða börn mættu bara þann daginn. Til að koma til móts við reglugerðir Persónuverndar þá eru engin nöfn á mætingalistanum, heldur er hvert barn táknað með tölu.
Inntak
Fyrsta lína inntaksins inniheldur tvær heiltölur $n$ og $m$ ($1 \leq n, m \leq 100$). Önnur lína inntaksins inniheldur $n$ ólíkar heiltölur $x$ ($1 \leq x \leq 10^5$). Þriðja lína inntaksins inniheldur $m$ ólíkar heiltölur $x$ ($1 \leq x \leq 10^5$). Tölurnar í annari línu svara til þeirra nemenda sem mættu á mánudaginn og tölurnar í þriðju línu svara til þeirra sem mættu á þriðjudaginn.
Úttak
Fyrsta lína úttaksins skal innihalda þær tölur úr annari línu inntaksins sem koma einnig fyrir í þriðju línunni, og þær skulu prentaðar í þeirri röð sem þær voru í inntakinu. Önnur lína úttaksins skal innihalda þær tölur úr þriðju línu inntaksins sem koma einnig fyrir í annari línunni, og þær skulu prentaðar í þeirri röð sem þær voru í inntakinu.
Sample Input 1 | Sample Output 1 |
---|---|
3 3 1 2 3 1 2 4 |
3 4 |
Sample Input 2 | Sample Output 2 |
---|---|
3 2 1 6 2 2 4 |
1 6 4 |
Sample Input 3 | Sample Output 3 |
---|---|
8 7 1 4 3 2 5 8 7 6 9 1 7 8 3 2 4 |
5 6 9 |