Hide

Problem K
Zyxab

/problems/zyxab/file/statement/is/img-0001.jpg
Letters eftir PublicDomainPictures, Pixabay
Þér og vini þínum finnst fátt skemmtilegra en að spila. En hafandi spilað öll spilin sem þið eigið ákveðið þið að búa til ykkar eigið spil. En nú, eftir mikið þrek og erfiði, ertu búinn að semja reglurnar og smíða leikborðið. Þú áttar þig þó á því að þú eftirlést vini þínum ekki nein verk. Það er þó eitt eftir sem þú getur leyft vini þínum að gera. Það á ennþá eftir að finna nafn á spilið. Þú varst þó hálfpartinn búinn að ákveða að kalla spilið Zyxab, svo þú setur honum nokkrar reglur sem munu reynast þér hagkvæmar.

Þú biður vin þinn um lista af nöfnum og segir honum að besta nafnið verði svo fyrir valinu. Besta nafnið er það nafn sem er styst, og af þeim nöfnum sem eru jafn stutt velur þú það sem er aftast í stafrófsröð. Nafnið má þó ekki hafa endurtekna bókstafi eða vera styttra en fimm bókstafir að lengd.

Nú hefur vinur þinn útbúið listann sinn og ekkert eftir annað en að finna ,,besta“ nafnið.

Inntak

Fyrsta lína inntaksins inniheldur heiltölu $1 \leq n \leq 20$. Síðan koma $n$ línur, hver með einn streng. Strengurinn innihledur einuningis lágstafi og er ekki lengri en $20$ stafir.

Úttak

Úttakið skal innihalda strenginn ,,Neibb“ ef ekkert nafn mætti teljast best. Annars skal það innihalda besta nafnið.

Stigagjöf

Hópur

Stig

Takmarkanir

1

30

Nöfnin innihalda bara stafina ,,a“, ,,b“, ,,c“ og ,,d

2

70

Engar fleiri takmarkanir

Sample Input 1 Sample Output 1
4
monkeys
horses
zyxab
doggies
zyxab
Sample Input 2 Sample Output 2
5
bergur
eylaifur
atli
androski
eilayfur
eylaifur
Sample Input 3 Sample Output 3
3
abc
abcd
zzabc
Neibb